Terms of service
Greiðslur fyrir pantanir
Hægt er að greiða fyrir vörurnar með debet og kreditkort í gegnum greiðslusíðu Teya. Yuyu ehf fær ekki upplýsingar um kort viðskiptavina. Sé óskað eftir að greiða með millifærslu er hægt að haka við það í greiðsluferli og millifæra á uppgefin bankareikning fyrirtækis.
Skilafrestur
Vilji viðskiptavinur skila eða skipta vöru hefur hann 14 daga til þess að koma vörunni til okkar í sama ástandi og varan var keypt og er þá boðið upp á að skipta á vörum eða endurgreiðslu gegn því að sýna sönnun að varan hafi verið keypt hjá okkur, t.d. kvittun, staðfestingu á greiðslu í heimabanka eða pöntunarnúmer. Verslunin getur ekki tekið við vörum sem hafa orðið fyrir skemmdum. Athugið að ekki er hægt að skila matvöru - þar með talið te.
VSK
Vsk númer verslunarinnar er 158996
Öll verð eru með vsk
Óski viðskiptavinur eftir því að fá kvittun með kennitölu skal rita það í athugasemd pöntunar ef það hefur gleymst er hægt að senda okkur línu á yuyu@yuyu.is með viðeigandi upplýsingum.
Sendingarmátar
Við sendum pantanirnar okkar með Górilla Vöruhúsi og hvetjum viðskiptavini okkar til þess að skrifa vandlega heimilisfang sitt á sendingar sínar svo þær villist ekki ásamt símanúmeri svo pöntunin skili sér hratt og örugglega.
Það tekur um 1-3 virka daga frá því að greiðsla fyrir pöntun berst þar til pöntunin er tilbúin.
Verslun
Verslunin okkar er aðallega á netinu en einnig erum við með tímabundnar verslanir (pop-up).
Ábyrgð
Ábyrgðin gildir í eitt ár frá kaupdegi. Framvísa þarf upphaflegri kvittun sem staðfestingu á kaupum. Ábyrgðin gildir eingöngu fyrir þann aðila sem upprunalega kaupir vöruna og færist ekki á milli eigenda og gildir ekki fyrir matvöru. Við áskilum okkur rétt til þess að skoða hverja vöru fyrir sig og meta ástand vörunnar.
Persónuverndarstefna
Við heitum viðskiptavinum okkar fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Við afhendum ekki upplýsingum um viðskiptavini okkar til þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.
Upplýsingar um eigendur
Yuyu ehf.
Kt. 541025-2940
VSK númer 158996
Aðrir skilmálar
Um þjónustuviðskipti gilda skilmálar sem skilgreindir eru í lögum um húsgöngu- og fjarsölusamninga nr. 46/2000 og lög um þjónustukaup nr. 42/2000. Varnarþing yuyu ehf. er í Héraðsdómi Reykjaness.
Ef einhverjar spurningar vakna hvetjum við ykkur til þess að hafa samband við okkur yuyu@yuyu.is
Heildsala
Fyrirtækið einnig sem heildsala, hafir þú áhuga á að selja vörurnar í þinni verslun eða á þínu kaffihúsi hvetjum við þig til að hafa við okkur samband.
Fyrirtækjaþjónusta
Við komum til móts við fyrirtæki um kaup á vörum til reksturs og höfum einnig ánægju á að aðstoða fyrirtæki við val á gjöfum fyrir starfsmenn og viðskiptavini. Ekki hika við að hafa samband við okkur fyrir frekari upplýsingar.