LUCE cold brew karafla 1L
Description
KINTO LUCE Cold Brew karafla – 1 L
LUCE-karaflan frá KINTO sameinar fágaða japanska hönnun og einfalda notkun. Hún er sérstaklega hönnuð til að laga kalt kaffi eða te á þægilegan hátt – settu einfaldlega malað kaffi eða telauf í fíngerða síuna, helltu köldu vatni yfir og leyfðu drykknum að draga í sig í kæli.
Fínmöskvuð sían heldur kaffikorgi og telaufum frá drykknum sem gefur þér tært og mjúkt cold brew. Hægt er að hella beint úr karöflunni án þess að opna lokið, en hönnunin á þessari karöflu kemur jafnframt í veg fyrir leka og ver drykkinn fyrir ryki.
Samspil hitaþolins glers og ryðfrís stáls gefur LUCE-karöflunni stílhreint yfirbragð sem sómir sér vel bæði á morgunverðarborðinu og þegar gesti ber að garði. Einstaklega falleg karafla fyrir alla sem vilja njóta kalds kaffis eða tes heima við.
Upplýsingar
- Rúmmál: 1 lítri
- Stærð: Ø 10,5 × H 25 cm
- Efni: Hitaþolið gler, ryðfrítt stál, sílikon og plast
- Fínmöskvuð sía fyrir telauf eða malað kaffi
- Auðvelt að taka í sundur og þrífa
- Má fara í uppþvottavél
- Glerkaraflan má fara í örbylgjuofn, án loks og síu