Seijaku byrjendasett + bambuspískur
Description
Byrjendasett fyrir þau sem langar að prófa að laga sitt eigið matcha heima, eiga notalega stund og laga sér góðan bolla. Í þessu setti færðu matcha - seijaku og vandaðan 100 stráa bambuspísk. Með þessu setti getur þý byrjað að píska þitt eigið matcha með skál sem þú átt heima við eða með einhverja af okkar sérvöldu skálum frá Japan. Þetta sett hentar einnig vel sem gjöf fyrir einhvern sem þér þykir vænt um.
Seijaku (静寂) er matcha í hæsta gæðaflokki, ætlað til að útbúa usucha - létt og þunnt matcha. Það býður upp á ferska og aðgengilega upplifun af japönsku tei.
Vandlega ræktuð telauf eru möluð hægt í steinkvörn og úr verður te með fersku, góðu jafnvægi, mildri sætu og hreinu, frískandi eftirbragði. Seijaku er fjölhæft og auðvelt að njóta, hvort sem það er þeytt á hefðbundinn hátt í teskál eða notað í daglegan matcha latte.
Nafnið Seijaku vísar til kyrrðar og stillu á japönsku. Teið er hugsað fyrir litlar kyrrðarstundir í hversdeginum.
Byrjaðu þitt matcha ævintýri hér...
Upplýsingar um seijaku
2025
Upprunaland: Japan
Stærð: 30g